Nefndir og leiðbeinendur sem stjórna verkefnum í Grænumörk skulu hafa náið samráð við forstöðumann hússins og stjórn félagsins.
Í nefndir er valið fólk sem hefur þekkingu og reynslu á því sviði sem nefndinni er ætlað að sinna.
Opið hús á fimmtudögum
Á fimmtudögum er húsið opnað kl. 13:00
þá sinnir hver og einn sínum hugðarefnum fram til kl. 14:45 þá hefjast kaffiveitingar
Þá tekur dagskrárnefnd við með auglýsta dagskrá.
í dagskrárnefnd eru:
Arndís Ásta Gestsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
Ingimar Pálsson
Hörpukórinn
Hörpukórinn æfir einu sinni í viku,
kórinn er sjálfstæð rekstrareining innan félagsins, en nýtur styrks frá FEB Selfossi.
Kórinn æfir á miðvikudögum í Grænumörk 5 undir stjórn Guðmundar Eiríkssonar.
Ferðanefnd innanlands
Skipuleggur sumarferðir og haustferðina innan lands. Á vorfundi skal kynna ferðaáætlun og dagsetningar ferðanna. Velja skal þann ferðatíma sem gefur hagstæðustu kjör og hafa í boði fjölbreytni í ferðavali. Árlega skal meta hversu margar ferðir skulu farnar. Miða skal við að ferðirnar beri sig fjárhagslega. Í auglýsingu skal koma fram verð ferðar. Nefndin hefur umsjón með fjármálum og gerir grein fyrir niðurstöðum að loknum ferðum. Í ferðanefnd eru: Þorgrímur Óli Sigurðsson, Helga Guðrún Guðmundsdóttir og Helgi Hermannsson.
Leikhús og kynninganefnd
Nefndin skal stuðla að áhugaverðum ferðum á leiksýningar, kvikmyndir og eða að fara á söfn.
Í nefndinni eru: Erla Guðmundsdóttir, Svala Halldórsdóttir og Sigríður J. Guðmundsdóttir
Fornbókmenntir
Að höfðu samráði við leiðbeinendur leshópsins er valin ein eða fleiri af fornsögunum til kynningar og lesturs yfir veturinn. Hópurinn kemur saman í Grænumörk 5, einu sinni í viku og les saman í klukkustund .
Að loknum vetri er skipulögð ferð á viðkomandi söguslóðir. Leiðbeinendur: Örlygur Karlsson, Jósefína Friðriksdóttir og Guðmunda Auðunsdóttir.
Handavinna
Felur í sér glerlist, tréskurð, prjónaskap og ýmiskonar föndurvinnu. Nefndin kynnir sér nýjungar og ný verkefni og leiðbeinir þátttakendum allt að tvisvar í viku, námskeiðin fara fram á ýmsum stöðum á Selfossi.
Umsjónarmenn skipuleggja Handverksýningu að vori á verkefnum vetrarins.
U
Spil
Félagsvist er spiluð einu sinni í viku í Grænumörk 5, þátttökugjald er kr. 250 sem rennur í verðlaunasjóð.
Umsjón hafa: Hilmar Þ. Björnsson, Sesselja S. Bjarnadóttir og Hrefna Kristinsdóttir.
Frjáls spilamennska er tvisvar í viku og Bridge er spilað tvisvar til þrisvar í viku.
Gönguferðir
Umsjónamaður velur akstursleiðir út úr bænum og síðan göngustíga með tilliti til veðurs og umferðar hverju sinni. Brottför er frá Grænumörk 5.
Umsjón með gönguferðum sem er á mánudögum hefur Þórunn Guðnadóttir
Snoker og Bridge að Grænumörk 5.
Flesta daga vikunnar.
Umsjón hefur Úlfar Guðmundsson.
Sundleikfimi í Sundhöll Selfoss.
Þjálfarar: Elísabet Kristjánsdóttir og Sigrún Hreiðarsdóttir
Árshátíðarnefnd
Skipuleggur og velur einstök atriði, dagsetningu, staðarval, dagskrárefni og annað er tilheyrir í samráði við stjórn. Í nefnd eru: Þóra Grétarsdóttir, Ólafur Backmann og Halldór Ingi Guðmundsson.
Öndvegisrit
Bókmenntalestur að Grænumörk 5, undir leiðsögn Sigrúnar Ásgeirsdóttur
Boccia
Létt leikfimi og Boccia 2var í viku.
Íþróttahús Iðu
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is